miðvikudagur, apríl 14, 2004
Fjórði í páskum
Á mínu heimili voru til 4 páskaegg, það er eitt á mann. Börnin fengu stærri eggin og rann nammið ljúflega niður hjá þeim yngsta. Hér var eldaður kalkúnn og komu pabbi, systkini mín og þeirra fjölskyldur í mat (14 manns). Það var mikið stuð sérstaklega hjá Bergþóri Atla, Agli og Sæunni. Það er alltaf fjör þegar þessi þrjú hittast.
Nú fer að líða að næsta frænkukvöldi sem verður hjá Öddu Birnu í lok apríl. Þetta líður svo hratt. Það væri gott ef þið mynduð hugsa um stað fyrir útileguna okkar í sumar fyrir það kvöld. Við þurfum að búa til útilegunefnd.
Sjáumst Íris frænka
|