Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júní 30, 2004

Camp Fire
Þá er útilegan búin. Að sjálfsögðu mættu aðeins hörkutólin í þessari fjölskyldu. Þeir sem tjölduðu komu sínum svefnplássum fyrir á föstudagskvöldi. Samkvæmistjaldi var komið fyrir á milli tjaldanna. Þar var síðan setið og spjallað þar til einhver útlendingur bað um að börnin færu að hafa hljóð. Einhverjir voru að tala um að það væri stormviðvörun á þessu svæði en við tókum nú ekki mikið mark á því. Hefðum kannski átt að hlusta því tjaldbúar sváfu víst ekki mikið fyrir vindi og á laugardagsmorgni var ákveðið að pakka tjöldunum saman áður en þau myndu hreinlega fjúka í burtu. Það var samt ekki nóg því Birna á ekki eftir að tjalda sínu tjaldi aftur, stangirnar splúndruðust og tjaldið rifnaði. Sem betur fer voru við með tvo sumarbústaði og gátu því tjaldbúarnir komið sér fyrir í þeim. BarbequeLaugardagurinn leið og um kvöldið vorum við með grillveislu til heiðurs ömmu. Hún hefði orðið 89 ára þennan dag. Sunnudagurinn kom og fór fólk þá að búa sig til heimferðar. Þetta var mjög skemmtileg helgi og vonandi sjá fleiri sér fært að mæta að ári liðnu.

|

mánudagur, júní 14, 2004

Útilega Útilega Útilega

Nú eru aðeins 11 dagar í útilegu. Aðsóknin að Húsafelli er víst mikil þessa helgina og ekki hægt að láta taka frá tjaldsvæði. Þess vegna þurfum við annað hvort að fara á fimmtudagskvöldi og tjalda nokkrum tjöldum eða snemma á föstudegi. Einhverjir eru búnir að fá bústað þessa helgina í Húsafelli þannig að ekki er gott að skipta um stað. Endilega sendið mér póst um hvenær þið getið farið og hvað við verðum með mörg tjöld.

Útilegukveðjur, Íris
|

föstudagur, júní 11, 2004

Halló halló
Nú þarf útilegunefndin að fara að koma sér í gang. Hverjir voru skipaðir í þessa blessuðu nefnd?????
Þeir vinsamlegast gefi sig fram

Jú Lára mér líst vel á golfmót um daginn og kannski bara einfalda leiki fyrir krakkaormana eins og hlaup´í skarðið
Svo getum við líka bara haft keppni í niðurgangi og ælu, því það er víst aðalmálið í Húsafelli þessa dagana.

kv. Sigga
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?