Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

föstudagur, júlí 30, 2004

Halló halló frænkur og allir hinir.

Síðan hefur ekki verið sérstaklega virk í sumar en nú líður senn að lokum þess og þá fer vonandi eitthvað að gerast í frænkuklúbbnum. Af mér og mínum er það að frétta að við höfum verið á fótboltavellinum meira og minna í allt sumar og nú eru Matti og Dóri í Skotlandi. Matti er í æfingabúðum þar. Ég og Bergþór erum því ein heima þessa dagana. Við erum að passa Emblu Sif því dagmamman hennar er í sumarfríi. Við ætluðum að fara í gær og monta okkur af henni en þá var hún bara lasin. Hún er nú hressari í dag, rífur og tættir öll blöð sem hún sér.  Egill Helgi hélt upp á afmælið sitt 17. júlí og auðvitað var sól og blíða og yfir 20 stiga hiti. Veislan var haldin úti, Pálmi gaf honum sundlaug í afmælisgjöf og auðvitað setti hann vatn í hana fyrir krakkana sem vakti mikla lukku. Sigga og hennar fjölskylda er í 40 stiga hita á Portugal og eldar allt í kringum þau.

Jæja þetta er nóg í bili sjáumst í næsta frænkuklúbbi.

Íris


|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?