Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, desember 23, 2004

Elsku frænkur og allar hinar!!!

Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Takk fyrir alla frænkuklúbbana.
Vonandi verða þeir margir og
skemmtilegir á nýju ári.

Jólakveðjur, Íris frænka.

|

sunnudagur, desember 12, 2004

Barnafrænkuklúbburinn tókst bara vel. Það var vel mætt og mikið eigum við nú falleg og stillt börn. Merkilegt hvað það eru margar stelpur í barnahópnum. Bergþór Atli og Bragi Hrafn héldu uppi heiðri piltanna. Kræsingarnar voru sko ekki af verri endanum, hún stendur sig vel í eldhúsinu hún Magga. Takk fyrir okkur.
Ákveðið var að hittast einhvern tíma í febrúar hjá Gunnu og Brynjari. Nánar auglýst síðar (verður í kringum 10. feb.)

Sjáumst sem fyrst, Íris.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?