Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

mánudagur, apríl 18, 2005

Brunch hjá Birnu klukkan 12 á sumardaginn fyrsta.
Hvernig lýst ykkur á stúlkur?
|
ÆTTARMÓT. 2005

Kæru ættingjar

Þá er komið að 4. ættarmóti afkomenda heiðurshjónanna Einars og Þóreyjar sem lengst af bjuggu í Loðmundarfirði. Nefnd sú sem skipuð var í Lónkoti á síðasta móti ákvað að hafa spakmælið: “Römm er sú taug sem rekka dregur föðurtúna til “ að leiðarljósi og valdi því Bakkagerði í Borgarfirði sem mótsstað helgina 9 – 10 júlí, félagsheimili Borgfirðinga Fjarðarborg verður miðpunktur mótsins.
Tekið hefur verið frá pláss á tjaldstæðinu sem er rétt hjá Fjarðarborg verð kr. 750 fyrir fullorðna á sólarhring, og ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára.
Búið er að taka frá allt laust gistirými í þorpinu og verður það staðfest þegar mótsgestir hafa látið frá sér heyra, ( frestur til 15 maí ) Hægt er að kaupa morgunnverð í Fjarðarborg.
Laugardaginn 9. júlí: Ferð í Loðmundarfjörð kl. 9.30, fyrir þá sem ekki komast á eigin bílum eru í boði ca. 20 sæti í smárútu verð kr. 2000 pr. sæti, staðfesta þarf pöntun á fari fyrir 15 maí.
Áformað er sameiginlegt grill á Nesi, pylsur og tilheyrandi lagt til úr sameign. Þeir sem áhuga hafa á gönguferð með sjónum frá Nesi og út á Landsenda fá fylgd staðkunnugra, svo er líka hægt að keyra inn í sveit og þar þekkja margir bæi og kennileyti.
Nefndin hefur ekki skipulagt fleiri ferðir en bendir á gönguferð í Stórurð af Vatnsskarði ( 6 klst.), skoðunarferð í Hafnarhólma og hugsanlega sjóstangveiði.
Kvöldverður hefst í Fjarðarborg kl. 19.00 , Þar verður á boðstólnum lambasteik og eftirréttur, verð kr. 2500 + vín eða gos. ½ gjald f. 8 – 12 ára og frítt fyrir yngri. (Húsið er með vínveitingaleyfi en ekki verður amast við því að menn hafi með sér eigin pela eftir borðhald ). Ákveðið hefur verið að rukka 1000 kr. fyrir fullorðna upp í sameiginlegan kostnað.
Undir borðum er öllum frjálst að láta ljós sitt skína svo sem segja frá atburðum síðustu ættarmóta og taka vel undir þegar söngstjóri gefur tóninn. Eftir borðhald verður athugað hvort hægt verður að koma saman hljómsveit og ef vel tekst til verður dansað fram eftir nóttu. Heiðursfólkinu Sigrúnu, Ólafi og Elínu verður boðin gisting og kvöldverður, eins og verið hefur. Sami háttur verður hafður á með skráningu og upplýsingagjöf , að hver ættleggur hafi samband við sinn fulltrúa í nefndinni.

Hittumst hress og kát í Borgarfirðinum í sumar. Með frændkveðju

Þórhallur Eyjólfsson Laugavöllum 9 Eg. sími 471-1237
Þórey Baldursdóttir Árgötu 1 Rfj. sími 474-1145
Eyþór Friðbergsson Hlíðargötu 4 Fás. sími 475-1299
Sigurður Mar Halldórsson Svalbarði 5 Höfn sími 478-2286
Sigurður Ólafsson Aðalbóli sími 471-2788
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?