Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

mánudagur, september 26, 2005

Sonur Siggu loksins fæddur.

Sigga systir ól son í morgun. 15 merkur og 53,5 cm.
Líðan þeirra er prýðileg.
Kv. Íris
|

laugardagur, september 24, 2005

Þríburar komnir með nafn.

Vaka Ösp, Valur Snær og Vera Dögg til hamingju með nöfnin og skírnina.
Sveinborg, Stebbi og Bjartur til hamingju með daginn.
|

fimmtudagur, september 08, 2005

Takk fyrir okkur í gær Íris mín. Að vanda fór allt vel fram og flestir fóru vel mettir heim... nema þeir sem eru á þessum danska :)
Nei nei þetta var nú bara grín.
Ég hef tekið að mér að halda næsta frænkuklúbb, í byrjun nóvember eða sirka bát. Þið látið mig bara vita ef það eru sérstakar óskir um dag. Ég geri ráð fyrir því að ég verði svona nokkuð laus við næstu mánuðina. Allavega ætla ég að reyna að vera myndarlegri húsmóðir en ég hef verið.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?