Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, mars 18, 2004

Takk fyrir gærkvöldið.
Þetta var frábært hjá þér Alla. Þú ert greinilega listakokkur því veitingarnar voru frábærar. Natalía París er algjört krútt, þó að hún hafi grátið smávegis. En hún vissi líka af öllum þessum höndum sem gátu bara alveg haldið á henni. Það verður gaman að fylgjast með í hverri hún hefur kveikt ;). Jæja ég verð víst að halda áfram að kenna. Sjáumst sem fyrst og endilega setjið nú inn einhver skilaboð. Bara svo ég viti að þið séuð að skoða.

Kveðja Íris ( sem verður ekki næst).
|

þriðjudagur, mars 16, 2004

Sælar stúlkur!!!!

Ætla bara að minna á frænkukvöldið á miðvikudaginn klukkan 20.00 hjá Öllu.
Hún býr á Baldursgötu 11, neðsta bjalla ómerkt.

Sjáumst hressar Íris
|

föstudagur, mars 12, 2004

Það eru komnar fleiri myndir inn á barnalandssíðuna. Krækjan er hér við hliðina en þið þurfið lykilorð inn á hana. Sendið mér póst og þá fáið þið lykilorðið.
Kveðja, Íris.
|
Það eru komnar fleiri myndir inn á barnalandssíðuna. Krækjan er hér við hliðina en þið þurfið lykilorð inn á hana. Sendið mér póst og þá fáið þið lykilorðið.
Kveðja, Íris.
|

þriðjudagur, mars 09, 2004


|

fimmtudagur, mars 04, 2004

Sælar frænkur og hinar!!!

Hvað haldið þið að hafi komið fyrir, tölvan krassaði eða næstum því. Það þurfti að uppfæra hana og þ.a.l. duttu út öll netföng sem ég var með. Mig langar því að biðja ykkur um að senda mér þau aftur og línu um heimilisföng og símanúmer. Ef þið vitið um einhverja sem les ekki bloggið okkar þá sendið mér hennar netfang líka.

Ég er búin að búa til síðu fyrir myndir á barnalandi hún heitir Frænkuklúbbur. Þið þurfið að fá lykilorðið hjá mér til að komast inn á hana. Ég vil ekki hafa það hér ef einhverjir aðrir en familien skoða þetta.

Tölvukveðjur, Íris frænka
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?