Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Frænkuklúbburinn <$BlogRSDUrl$>

laugardagur, nóvember 06, 2004

Sælar stúlkur!

Eins og þið vitið þá var frænkukvöld hjá Láru 4. nóvember, Lára eldaði þessa dýrindissúpu og bakaði handa okkur eplaköku ( nammi namm). Þetta kvöld fjölgaði í frænkuhópnum því Birna systir var á fæðingardeildinni. Um klukkan hálf 9 kom í heiminn keisaraynja nærri 18 merkur og 57 cm. Þetta var því nokkurs konar fæðingarvaka hjá okkur í þetta skiptið. Nokkrum dögum áður hafði Adda Birna fært okkur keisara sem var18 merkur og 56 cm.
Í desember ætlum við að hafa jólaklúbb og verða börn velkomin. Magga ætlar að opna sínar dyr fyrir okkur sunnudaginn 12. desember klukkan 16.00. Ef þetta breytist eitthvað þá bloggum við og sendum póst á milli.

Hlakka til að sjá ykkur
kv. Íris

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?