sunnudagur, júlí 29, 2007
Þá er Fjölskyldu og húsdýragarðurinn búinn. Þetta var mjög fínt, við systur mættum með tríóin tvö, (Bergþór, Egil og Sæunni ) og (Sólveigu, Birgi og Atla) Sveinborg og Stína með grislingana þrjá, Alla og Arnar Gauti mættu með sína prinsessu. Bergþór og Egill voru ekkert að hafa áhyggjur af mæðrum sínum léku sér í öllulm garðinum og áttum við erfitt með að fá þá til að fá sér að borða. Egill varð síðan rennandi blautur því það var víst geðveikt gaman að fara yfir pollinn þarna. Sólveig og Birgir æddu beint í kastalana og þurftum við systur og Sæunn að hafa okkur allar við að fylgjast með þeim. Natalía París er orðin svo stór að hún getur næstum því verið ein en pabbi hennar hafði augun á henni. Valur, Vaka og Vera er með stilltustu 2 ára börnum sem ég hef séð. Þau fóru ekki langt frá mömmu eða Stínu sinni. Að vísu fundu þau lítinn poll og voru að dunda sér við að ganga yfir hann. En Birgir Freyr fór ekki alveg jafn fínt í það, heldur hoppaði í honum þannig að það þurfti að klæða hann úr fötunum til að setja hann í kerruna svo skítugur og blautur var hann. Og honum fannst þetta ekkert smá fyndið.
Ekki mættu fleiri í garðinn að þessu sinni, vonandi komist þið næst að hitta okkur.
Ég frétti af því að það yrði líklega ættarmót næsta sumar, afaleggur. Vonandi hittumst við öll þar.
En við frænkur og hinar ætlum að hittast hjá Siggu systir snemma í september, nánari tímasetning kemur síðar.
Kveðja, Íris
|